Þegar Gurra norn stelur galdradótinu hans Herra Skrudda neyðist hann til að leggja í mikla ævintýraför til að ná því til baka. Á ferðalaginu nýtur hann aðstoðar dýranna í Galdralandi til að yfirstíga hindranir sem verða á vegi hans.
Herra Skruddi og týnda galdradótið var skrifuð árið 1998, þegar höfundur sögunnar var 10 ára gamall.
Myndir eftir David Sopp, David er bandarískur hönnuður og teiknari sem er þekktastur fyrir bráðfyndnu foreldrahandbókina Safe Baby Handling Tips. Hann er minna þekktur fyrir límmiðina sína af kúkandi köttum.